Fréttir
16.09.10
Nýtt starfsár
Kæru Inner Wheel félagar. Þá er nýtt starfsár að hefjast. Umdæmisstjórnin hefur hafið starf sitt eins og sjá má á inngangssíðu heimasíðunnar. Einkunnarorð forseta alþjóðaumdæmisins hefur verið sett inn ásamt íslenskri þýðingu. Umdæmisstjóri er að byrja að skipuleggja heimsóknir til klúbbanna og mun á næstu dögum hafa samband við alla viðtakandi forseta og ganga frá heimsóknardagsetningu. Óska ykkur alls hins besta í starfi vetrarins. Hildur Thors, umdæmisstjóri.

